Hráefni

Uppskrift fyrir tvo

Laxabollur

200 g laxafars
1 egg
1 sítróna (börkur)
9 g graslaukur smátt skorinn 
6 g steinselja smátt skorin
45 g skalottlaukur smátt skorinn

Tzatziki sósa

125 g jógúrt
90 g agúrka kjarnahreinsuð og smátt skorin
40 g tahini
2 hvítlauksgeirar rifnir
5 g mynta smátt skorin

Borið fram með

Steinselju
Sítrónusafa

Aðferð

Blandið saman laxafarsi, eggi, skalottlauk, sítrónuberki, graslauk og steinselju og kryddið eftir smekk.

Myndið laxabollur með tveimur skeiðum og setjið á disk.

Blandið hráefnum að tzatziki sósu í skál og saltið eftir smekk.

Hitið pönnu vel með olíu og steikið laxabollurnar á öllum hliðum í 2-3 mínútur. Kryddið með salti.

Berið fram með tzatziki sósu, steinselju og sítrónusafa.